Ástríða – Reynsla – Áreiðanleiki
Yfir 40 ára reynsla
ofan jarðar og neðan.
PK Verk er sérhæft fyrirtæki í mannvirkjagerð, vegagerð, veitulögnum og húsbyggingum fyrir opinbera aðila og einstaklinga.
Verkefnasvið
Fjögur svið, eitt fyrirtæki
Verkefni félagsins eru fjölbreytt, fyrir Veitur, Vegagerðina, sveitarfélög, húsfélög og einstaklinga.
01VegagerðVerkefni fyrir Vegagerðina og sveitarfélög, t.d. hringtorg og undirgöng við Esjumela.Skoða 1 verkefni →
02VeitulagnirLagnavinna og veitumannvirki fyrir Veitur og aðrar veitustofnanir, t.d. lokahús vatnsveitu og dreifistöðvar. Rætur starfseminnar liggja í vinnu fyrir Hitaveitu Reykjavíkur.Skoða 3 verkefni →
03MannvirkjagerðFjölbreytt mannvirkjagerð fyrir sveitarfélög, húsfélög og einstaklinga, t.d. endurnýjun Freyjutorgs með djúpgámum og dvalarsvæði.Skoða 1 verkefni →
04HúsbyggingarByggingarverkefni fyrir verkkaupa auk eigin íbúða til sölu á almennum fasteignamarkaði. Félagið hefur byggt og selt 31 íbúð á undanförnum árum.Skoða 3 verkefni →Verkefnin okkar
Nýleg verkefni

Um PK Verk
Öflugt verktakafyrirtæki með djúpar rætur
PK Verk ehf. var stofnað árið 2001 en starfsemin á rætur sínar að rekja allt til ársins 1973, þegar Kristján Kristjánsson byrjaði að vinna fyrir Hitaveitu Reykjavíkur í eigin nafni sem þjónustuverktaki. Síðan þá hefur fyrirtækið vaxið jafnt og þétt.
Fjöldi starfsmanna er breytilegur eftir verkefnastöðu en ársverk eru að meðaltali um 30.
Verkkaupar okkar
- Sveitarfélög
- Veitustofnanir
- Vegagerðin
- Veitur
- Húsfélög
- Einstaklingar
Viðskiptavinastefna
Svona vinnum við með verkkaupum
- 01
Kröfur skýrðar
Kröfur og væntingar verkkaupa eru skýrðar og þeim miðlað til þeirra sem vinna verkið.
- 02
Skýr samskipti
Skýrar samskiptaleiðir og viðeigandi upplýsingar á réttum tíma.
- 03
Ábyrg framkvæmd
Áhersla á gæði, frágang og afhendingu í samræmi við samþykktar kröfur.
- 04
Eftirfylgni
Brugðist við athugasemdum og reynsla nýtt til að bæta vinnubrögð.
Stefnur PK Verk
Gæði, öryggi og umhverfi í hverju verki

Gæðastefna
Vönduð skipulagning, skilvirk framkvæmd, samræmi við kröfur og stöðugar umbætur.

Öryggisstefna
Öruggar og heilsusamlegar vinnuaðstæður og markviss vinna gegn slysum og heilsutjóni.

Umhverfisstefna
Ábyrg nýting auðlinda, mengunarvarnir og lágmörkun neikvæðra umhverfisáhrifa.

Viðskiptavinastefna
Traust og fagleg samskipti, ábyrg framkvæmd og markviss eftirfylgni.
Ertu með verk í huga?
Sendu okkur verkbeiðni með helstu upplýsingum. Því meiri upplýsingar því betra.




